KOMANDI VINNUSTOFA
UPCPOMING ARTIST’S STUDIO

ANNA MARGRÉT

ÆTTARMÓT
07.05 – 25.05.2024

Í vinnustofu sinni í Gryfjunni mun Anna Margrét rannsaka áhuga Íslendinga á ættfræði og þeirri hefð að halda ættarmót. Siðinn í kringum ættarmót má rekja aftur til fyrri hluta síðustu aldar. Róttækar samfélagsbreytingar urðu til þess að stór hluti þjóðarinnar fluttist búferlum á höfuðborgarsvæðið. Tilefnið var því ærið og stórfjölskyldunni hópað saman á sumrin í sveitinni. Vinnustofan snýr að því að hanna ættarmót fyrir fólk sem er ekki skylt, í von um að ættarmót framtíðar geri ráð fyrir fjölmenningarsamfélaginu sem við búum í í dag. Eftir að hafa eytt miklum tíma með ættingjum af eldri kynslóðinni vakti það áhuga Önnu Margrétar hvað sú kynslóð ræðir mikið um tengingar og ættfræði. Hafa þessar vangaveltur vakið upp nokkrar spurningar sem Anna Margrét mun meðal annars velta upp í samtölum og viðtölum við fjölbreyttan hóp fólks. 

 

 

NÝLIÐIN VINNUSTOFA
LATEST ARTIST’S STUDIO


SEAN PATRICK O’BRIEN

LJÓSVAKI | LUMINIFEROUS AETHER
09.03 – 17.04.2024

▸ NÁNAR | READ MORE





VINNUSTOFUR
ARTIST’S STUDIOS

GUNNFRÍÐARGRYFJA

Gunnfríðargryfja er 28 fm sýningarrými á 1.hæð þar sem Gunnfríður Jónsdóttir bjó og starfaði frá árinu 1934-1968. Í rýminu eru listamönnum og hönnuðum boðin opin vinnustofa þar sem vinnuaðstaða er opin gestum og gangandi. Gesir geta fræðst og forvitnast um myndlistarsköpun viðkomandi og ferlið er dregið fram í dagsljósið. Í gegnum árin hefur Gunnfríðargryfja hýst myndlistarmenn við textílvinnu, skúlptúr og höggmyndagerð, prentverk, málverk, gjörninga, sviðsverk og hin fjölbreyttustu listform.

 
 

FYRRI
PAST

2023 ▼

2022 ▼

2021 ▼

2020 ▼

2019 ▼

2018 ▼

 

HÖGGMYNDIR Á GUNNFRÍÐARSTÖPLI

SUMARIÐ 2018 - NÚNA

MATTHÍAS RÚNAR SIGURÐSSON

Matthías Rúnar Sigurðsson (f. 1988) býr og starfar í Reykjavík. Hann útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2013. Á undanförnum árum hefur hann mótað höggmyndir sínar úr graníti, gabbró, marmara og grágrýti og kallað fram úr því kynjaverur. Matthías umbreytir grjóti í fullmótaða karaktera eða einskonar líkneski þar sem mörk milli manna, dýra og hluta verða óljós.


Í garðinum við Ásmundarsal hefur Matthías vinnuaðstöðu og hefur unnið tvö verk síðast liðin ár og það nýjast heitir Haustgríma (2022). Þar á undan vann hann Steinkött á Gunnfríðarstöpli og svo situr ómótað granít á hinum þriðja. Spennandi er að sjá vinnuferlið frá byrjun, frá því hann grófmótar stein með slípirokk og þar til hann lýkur verkinu með fræsurum og demantsþjölum.

Steintegundin sem hann vinnur með kallast Gabbró og kemur frá Stokksnesi skammt frá Höfn í Hornafirði. Stokksnes er nálægt tveimur fjöllum sem heita Eystra- og Vestrahorn og eru þau úr gabbrói. Stundum er gabbró kallað granít til einföldunar, því það hefur svipaða eiginleika og granít.

SUMMER 2018 - NOW

MATTHÍAS RÚNAR SIGURÐSSON

Matthías Rúnar Sigurðsson (b. 1988) lives and works in Reykjavík. He graduated from the Icelandic University of Art in 2013. In recent years he has carved his sculptures out of granite, gabbro and basalt. Matthías shapes stones into fully formed characters or idols of sorts, where the boundary between man, animal and object is sometimes blurred.

Matthías uses the garden to create his work and he has finished two sculptures in the past years and his newest one is Haustgríma (2022). It is exciting to witness the work progressing and have it visible for the cafe goers eyes, first he uses an angle grinder along with a hammer and chisel followed by die grinders and diamond files to create the details at the end.

The rock he has used is called gabbro and originates in Stokksnes, a peninsula close to Höfn í Hornafirði. Stokksnes lies close to the mountains Eystrahorn and Vestrahorn, which are composed of gabbro. Gabbro is sometimes just called granite as it has similar characteristics.