Loji-1.jpg

Loji Höskuldsson

Loji Höskuldsson (f. 1987) er íslenskur listamaður. Hann útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2010. Í myndlist sinni kannar hann hefðbundnar og nýjar leiðir í útsaumi, tækni sem hann hefur þróað og unnið með móður sinni. Í útsaumi Loja er viðfangsefnið fengið úr hversdagsleikanum, plöntur, ávextir og hlutir sem finnast á heimilum.

Loji færði vinnustofu sína tímabundið í Gryfjuna í Ásmundarsal þar sem hann vann að verkum sem voru saumuð í kaffisekki frá Reykjavík Roasters sem að lokum urðu sýnd á kaffihúsinu í Ásmundarsal.

Loji Höskuldsson, 1987, Reykjavík, Iceland. Graduated from the Iceland Academy of the Arts in 2010. His visual art primarily explores new and traditional ways of embroidery, a technique he inherited from his mother who is a professional seamstress and embroidery expert. In his embroidery, Loji most often depicts a sort of still life with focus on everyday objects, plants and fruits. The subtle poetic situations in our domestic lives are elevated in his works.