Sequences-5.jpg

Í ALVÖRU?: VINNUSTOFUR Í GRYFJUNNI Í ÁSMUNDARSAL

Í alvöru? er yfirskrift vinnustofa sem Sequences myndlistarhátíð í samstarfi við Ásmundarsal stendur fyrir. Í alvöru? vísar í yfirskrift sjálfrar hátíðarinnar, Í alvöru. Vinnustofurnar eru opnir tilgátuviðburðir, líkt og hátíðin sjálf.

Listamenn sem taka þátt í Sequences myndlistarhátíðinni með ólíkum hætti, munu leiða vinnustofur í Gryfjunni. Vinnustofurnar Í alvöru? eru einskonar framlenging hugmyndanna sem sýningarstjórar Sequences IX vinna með, og þeirra ólíku verka sem listamennirnir á hátíðinni leggja fram.

Sequences ber undirtitilinn list í rauntíma (Sequences real time art festival). Á Sequences ix leggja sýningarstjórarnir Ingólfur Arnarsson og Hildigunnur Birgisdóttir fram ákveðna grunnhugmynd um raunveruleika og tíma og sýna verk ólíkra listamanna sem hver á sinn máta takast á við þessi hugtök. Í texta þeirra segir að gestir bæti síðan við sinni sýn og upplifun, að hátíðin sé opinn tilgátuviðburður um tíma okkar og stað í tilverunni.


19. OKT 2019 — 14:00

Kristján Leósson, sérsvið: eðlisfræði

Af hverju tíminn er ekki allur þar sem hann er séður - Um tilvist tíma - / - umfang nútíðar -
Kjörhópur: 15 ára og eldri, áhugasamir um tímann og tilveruna

Í vinnustofunni ræðir Kristján við þátttakendur um það af hverju tíminn er ekki allur þar sem hann er séður. Í texta sínum fyrir Sequences skrifar Kristján: „Hugtökin „raun“ og „tími“ eru hvort um sig nauðsynleg blekking – tilbúinn veruleiki sem fellur um sjálfan sig við alla nánari skoðun en er samt svo óþægilega fast rótaður í tengslum okkar við umhverfið, við okkur sjálf og við hvort annað.”


26. OKT 2019 — 14:00

Þóranna Dögg Björnsdóttir, sérsvið: tónlist og myndlist

Hljóðnostur
Kjörhópur: áhugasamir um hljóð, 10. bekkur og eldri.

Þátttakendur fá tækifæri til að prófa ýmis konar hljóðgjafa, leggja við hlustir og rýna í hljóðin. Ólíkar leiðir til að túlka hljóð í efni og texta verða prófaðar, með því að draga fram myndir sem spretta fram við skynjun hljóðs og jafnvel við að framkalla minningar um hljóð.


27. OCT 2019 — 14:00

Karlotta Blöndal, sérsvið: myndlist

Haust, hringrás og náttúra
Kjörhópur: 4-44 ára, áhugasamir um töfra og teikningu.

Haustlaufin rata inn í Ásmundarsal og töfrar þeirra verða skoðaðir. Þátttakendur í samvinnu við kennara gera tvær jafnvígar tilraunir í að finna muninn á því að teikna það sem maður heldur að sé og það sem er. Haustlaufin verða skoðuð; litir, form, áferð, stærð og margbreytileiki.