SÝNING
/ EXHIBITION
28. JÚNÍ 2025
ÞÆTTIR
Vala Sigurðardóttir
28. JÚNÍ – 10. ÁGÚST 2025
Með sinni fyrstu einkasýningu á Íslandi frá því hún flutti til Belgíu, snýr Valgerður Sigurðardóttir (f. 1992, Reykjavík — býr og starfar í Antwerpen) aftur heim með glænýja röð keramíkverka. Þetta er heimkoma á fleiri en einn hátt. Hún er ekki bara að snúa heim landfræðilega, heldur líka hugmyndafræðilega — og að vissu leyti til hennar sjálfrar. Verkin marka vegferð sem er mjög persónuleg — kvenleg, dularfull, öflug og viðkvæm allt í senn.
Við fyrstu sýn virka teikningar og skúlptúrar hennar einfaldar, en undir yfirborðinu leynist ólgandi flækja. Hún byrjar á einhverju kunnuglegu — heimilissenum, smáatriðum dagsins — og blandar svo inn draumum, tilfinningum og óljósum minningum. Hún leikur sér að mörkunum milli öryggis og óöryggis, milli þess sem við þekkjum og þess sem vekur ónot. Eins og í sýningunni Talking to an Angel sem hún sýndi í KETELEER GALLERY árið 2024, sækir hún í eigin reynslu: fæðingu, móðurhlutverkið, missi og þrá. En hún lætur þar ekki staðar numið — hún sækir tengsl í annað stærra, hinn sameiginlega reynsluheim — sammannlegt svæði þar sem frummyndir, sögur og draumar renna saman í eitt.
MEIRI TEXTI……
[ENGLISH]
In her first solo exhibition in Iceland since relocating to Belgium, Valgerður Sigurðardóttir (b. 1992, Reykjavik — lives and works in Antwerp) returns with a completely new series of ceramic sculptures. It is a homecoming in more ways than one. Not only geographically, but thematically and intuitively as well, her work traces a path toward a deeply personal perspective — one that is at once feminine, mystical, powerful, and tender.
Beneath the apparent simplicity of her drawings and sculptures lies a quiet complexity. Beginning with familiar, domestic scenes — the small, the everyday, the intimate — and drawing on dreams and emotions, Sigurðardóttir explores the fine line between comfort and recognition on one hand, and strangeness and delirium on the other. As in her 2024 exhibition Talking to an Angel at KETELEER GALLERY, she draws from personal experiences such as birth, motherhood, loss, and longing. Yet her work moves beyond the personal, tapping into a collective memory — a shared emotional landscape where archetypes, stories, and dreams quietly echo.
VALGERÐUR SIGURÐARDÓTTIR (b. 1992. Reykjavik, Iceland. Lives and works in Antwerp, Belgium.), ‘Vala’ in short, received her master’s degree in Sculpture at KASK, Ghent, Belgium and studied at the Royal Academy of Arts, Antwerp, Belgium prior to that as an Erasmus exchange student from the Icelandic Academy of Arts where she finished her bachelor’s degree. In 2017 she co-founded ABC Klubhuis. Since 2013 she took part in numerous group exhibitions in Reykjavik, Oslo, Ghent, Antwerp, Romania,