SÝNING
/ EXHIBITION

10.10.–08.11.26

Guðjón
ketilsson

spor

OPNUN:
10.10.26
laugardagur
16:00 – 18:00

Á einkasýningu Guðjóns Ketilssonar, Spor, í Ásmundarsal mætast fjórir verkhlutar sem ekki hafa verið sýndir áður; teikningar þar sem handskrifaður textamassi fyllir myndflötinn; hversdagslegir, fundnir hlutir sem öðlast nýja nærveru og annað hlutverk; olíukrítarteikningar af fundnum hlutum og stækkuð fingraför þar sem persónulegar hugleiðingar fylgja línum líkamans í teikniskrift. Sameiginlegur kjarni verkanna felst í því hvernig hugsun, nærvera og skynjun taka á sig sýnilega og efnislega mynd og skilja eftir sig ummerki.

Guðjón Ketilsson (f. 1956) býr og starfar í Reykjavík. Á rúmlega fjörutíu ára ferli hefur hann haldið yfir þrjátíu einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum í Evrópu, Bandaríkjunum, Kína, Ástralíu og á Norðurlöndunum, auk sýninga í helstu listasöfnum og sýningarýmum á Íslandi. Hann vinnur aðallega með teikningu og skúlptúr. Verk hans einkennast af nákvæmu handverki og rannsóknum á mannslíkamanum, hversdagslegu umhverfi, tíma, minni og sögu. Í nýlegum verkum kannar hann einnig tungumál og skrift sem framlengingu hugsunar og skoðar texta sem teikningu og mynd í senn, auk þess sem fundnir hlutir, sem lokið hafa fyrra hlutverki sínu, fá oft nýtt líf í skúlptúrum hans.

Guðjón hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2020 og var yfirlitssýning á myndlistarferli hans haldin á Kjarvalsstöðum, Listasafni Reykjavíkur árið 2022. Listferli Guðjóns hafa verið gerð skil í tveimur veglegum bókum, auk þess sem fjöldi minni útgáfa um einstaka sýningar hans hafa verið gefnar út. Verk hans eru í eigu helstu listasafna landsins, í einkasöfnum og nokkrum erlendum söfnum, þeirra á meðal í Metropolitan Museum of Art í New York.


[ ENGLISH ]

Guðjón
ketilsson

traces

OPening:
saturday
10.10.26
4PM – 6PM

In Guðjón Ketilsson’s solo exhibition Traces at Ásmundarsalur, four previously unseen bodies of work come together: drawings in which masses of handwritten text fill the picture plane; everyday found objects that acquire a new presence and role; oil-pastel drawings of found objects; and enlarged fingerprints in which personal reflections follow the lines of the body in writing-as-drawing. At their core is a shared concern with how thought, presence and perception take on visible and material form, leaving traces behind.

Guðjón Ketilsson (b. 1956) lives and works in Reykjavík. Over a career spanning more than forty years, he has held over thirty solo exhibitions and participated in numerous group exhibitions throughout Europe, the United States, China, Australia and the Nordic countries, as well as exhibiting in Iceland’s leading museums and art spaces. He works primarily with drawing and sculpture. His practice is distinguished by meticulous craftsmanship and an ongoing inquiry into the human body, the everyday environment, time, memory and history. In more recent works, language and writing have also become central: writing functions as an extension of thought, while text is approached simultaneously as drawing and image. Found objects whose previous functions have come to an end are likewise often given an afterlife in his sculptures.

Guðjón received the Icelandic Art Prize in 2020, and a major survey of his work was presented at Reykjavík Art Museum, Kjarvalsstaðir, in 2022. His practice has been documented in two substantial books, alongside numerous smaller publications devoted to individual exhibitions. His works are held in the collections of Iceland’s principal art museums, in private collections and in several museums abroad, including The Metropolitan Museum of Art in New York.