VINNUSTOFA
/ Open Studio
20.04 – 07.05.26

SÓLEY JÓHANNSDÓTTIR

DAYDREAMING

opnun Sýningar:
Fimmtudaginn, 07.05.26
KL. 20 – 22

 
 

Fatahönnuðurinn Sóley Jóhannsdóttir kynnir nýjustu fatalínu sína, Daydreaming, undir merkinu By Soley, á HönnunarMars 2026. Dagana 20. apríl til 7. mai verður Sóley með opna vinnustofu í Gryfjunni þar sem hún býður gestum að kynnast vinnuferlinu á bakvið hönnun línunar Daydreaming. Í Gryfjunni tekur Sóley á móti gestum alla daga frá kl. 13:00-16:00.

Síðastliðin ár hefur Sóley starfað hjá nokkrum af virtustu tískuhúsum heims, þar á meðal Louis Vuitton, Paul Smith og Lemaire. Nú stígur hún sín fyrstu skref með eigið merki hér á landi, en fatalínan Daydreaming er hönnuð af henni og er sjálfstætt framhald af fyrstu línu hennar, Sleepwalker, sem frumsýnd var á HönnunarMars 2025 við frábærar undirtektir. Með nýju línunni heldur Sóley áfram að þróa sitt listræna mál, sem einkennist af samspili draumkennds veruleika og þyngri forma.

Skart í línunni er hannað af Indy Alda Saouda Yansane, en François Ferraguti sér um hönnun á töskum, beltum og skóm.

Línan er framleidd í samstarfi við ítalska framleiðslufyrirtækið Riccitelli Milano, sem tryggir vandaða framleiðslu á Ítalíu og alþjóðlega framleiðslugetu. Samstarfið styður við framtíðarsýn vörumerkisins um að festa sig í sessi á bæði íslenskum og alþjóðlegum tískumarkaði.

Fimmtudaginn 7. maí kl. 20 opnar sýningin Daydreaming eftir Sóley Jóhannsdóttur.

 
 

Vinnustofan
/ Open Studio

Gestir eru hvattir til að kíkja á vinnustofuna og skyggnast á bakvið tjöldin við hönnun og gerð fatalínunnar Daydreaming.
Sóley tekur á móti gestum alla daga frá kl 13-16.

 
 

SS27 FATALÍNAN DAYDREAMING
/ The SS27 collection Daydreaming

 

Ljósmyndun
/ Photography:

Helga Katrínardóttir

Aukahlutir
/ Accessories:

François Ferraguti

Skartgripir
/ Jewellery:

Indy Alda Saouda Yansane

Hár og Förðun
/ Hair and Make-up:

Sunna Björk Erlingsdóttir

Fyrirsætur
/ Models:

Anna Clausen and Hlín Björnsdóttir, Ey-Agency

Stílesering
/ Styling:

Anna Clausen and Sóley Jóhannsdóttir

 

Sóley Jóhannsdóttir útskrifaðist úr mastersnámi í fatahönnun hjá Francaise de la Mode í París árið 2020 eftir að hafa klárað BA nám í University of Brighton 2017. Sumarið 2024 sótti Sóley námskeið hjá  Saville Row í klæðskerasaum með áherslu á sníðagerð og svokallaða “made to measure” aðferð.

Síðastliðin 4 ár hefur Sóley verið að hanna fyrir Franska tískuhúsið Louis Vuitton, en þar á undan vann hún hjá merkjum á borð við Lemaire og Paul Smith. Á síðasta ári byrjaði Sóley að taka að sér sjálfboðavinnu í samstarfi við Louis Vuitton og Fabrique Nomad, en útkoman af verkefninu var sýnd í Louvre safninu í síðastliðnum janúar.

 
 

OPnunin
/ The Opening


[ ENGLISH ]

SÓLEY JÓHANNSDÓTTIR

DAYDREAMING

Opening
thursday, 07.05.26
8 pm – 10 pm

The SS27 collection Daydreaming by Sóley Jóhannsdóttir marks the launch of By Soley, a new label defined by precision, material integrity, and a clear authorial voice. The collection is manufactured in collaboration with Riccitelli Milano, ensuring the finest Italian quality and craftsmanship.

Sóley brings with her experience from leading international houses, including Louis Vuitton, Paul Smith, and Lemaire. With Daydreaming, she establishes her own position; direct, controlled, and unmistakably personal. The collection follows her debut Sleepwalker, presented at HönnunarMars 2025, but moves forward with greater clarity and conviction.

The work operates in a space where opposing qualities are held in tension; softness against structure, intuition against discipline. This is not aesthetic ambiguity but a deliberate construction, where each garment serves a defined role within a cohesive whole.

Materials are selected with discipline rather than excess. Textiles and leather are sourced from Japan, Italy, and Turkey, chosen for their character and longevity. Production is made entirely in Europe; garments are produced in Italy, belts in Spain, bags handmade in Paris, and jewellery handcrafted in Iceland.

Sóley Jóhannsdóttir graduated with a Master’s degree in Fashion Design from Institut Français de la Mode in Paris in 2020, after completing a BA degree at University of Brighton in 2017. In the summer of 2024, Sóley attended a tailoring course at Savile Row, focusing on pattern cutting and the “made-to-measure” method.

For the past four years, Sóley has been designing for the French fashion house Louis Vuitton. Prior to that, she worked for brands such as Lemaire and Paul Smith. Last year, Sóley began volunteering in collaboration with Louis Vuitton and Fabrique Nomade, and the outcome of the project was exhibited at the Louvre Museum this past January.

 
 

SÝNINGIN
/ THE EXHIBITION