útgáfa
/ sýning
GRYFJA
03.09.–20.09.26
SIGVALDI THORDARSON
arkitekt
OPNUN:
Fimmtudaginn 03.09.26 kl. 17–19
ÚTGÁFUHÓF
FIMMTUDAGINN 10.09.26 KL. 17–19
Sýning samhliða útgáfu bókar um arkitektinn Sigvalda Thordarson (1911-1964) í Gryfju, sem stendur frá 3. – 20. september.
Verk af sýningu Loja Höskuldssonar, Ástarbréf til Sigvalda, í Gryfjunni 2021. Módelið er af húsi sem Sigvaldi teiknaði fyrir sig sjálfan en var aldrei byggt. Módelgerð: Gunnhildur Melsteð, arkitekt.
Sigvaldi Thordarson er einn merkasti listamaður sinnar kynslóðar og sá arkitekt eftirstríðsáranna sem hvað kunnastur er fyrir verk sín.
Í bókinni rekur Albína Thordarson arkitekt sögu föður síns og verka hans eins og hún sjálf upplifði hana. Einstæð frásögn hennar varpar ljósi á lítt kannaðan þátt í þróun byggingarlistar á Íslandi á 20. öld þar sem við sögu koma feðginin Sigvaldi og Albína, tveir af hseltu arkitektum sinnar kynslóðar.
Bókin er samvinnuverkefni Albínu og arkitektsins Péturs H. Ármannssonar sem ritar aðfaraorð og kafla um náms- og mótunarár Sigvalda. Í bókinni er fjöldi áður óbirtra ljósmynda og teikninga ásamt skrá yfir verk arkitektsins.