SÝNING
/ EXHIBITION
SALUR
28.03.–26.04.26
SAMBLAND
COMBI–NATION
Adam Flint Taylor
Clare Aimée
Julie Sjöfn Gasiglia
Natka Klimowicz
Patty Spyrakos
Pola Sutryk
Vikram Pradhan
OPNUN:
Laugardaginn, 28.03.26
KL. 15 – 17
Sambland / Combi–Nation fjallar um að rata í gegnum lífið – frá upphafsreit til endapunkts. Sýningin skoðar hversdagsleg augnablik sem hafa þann kraft að geta kollvarpað stefnu og tilveru þess sem lifir. Lista-menn sýningarinnar hafa ólíka bakgrunna og koma frá ólíkum stöðum en eiga það sameiginlegt að hafa ratað óvænt til Íslands, staðs sem er orðið að heimili þeirra. Öll hafa þau upplifað, á ólíkan máta, að rífa upp gamlar rætur á fyrri slóðum og rækta nýjar. Eins og planta í nýrri jörð sem rótar sig á ókunnugum slóðum, þarf hún að kljást við hindranir, sem getur reynst sárt og kalt.
Í verkum sínum, skoða þau jafnvægi þess sem „var þar“ og þess sem „er hér“ og hvernig það fléttast saman. Þau eru sem flakkandi jurtir – sem auðga og bæta vistkerfið. Saman, hafna þau hugmyndinni að vera skilgreind út frá því að tilheyra eða tilheyra ekki, og beina þess í stað sjónum að fegurðinni sem felst í vexti garðsins sjálfs.
Listamenn sýningarinnar eru Julie Sjöfn Gasiglia (b.1990, IS/FR), Natka Klimowicz (b.1992, IS/PL), Pola Sutryk (b.1994, IS/PL), Patty Spyrakos (b.1974, IS/US), Adam Flint Taylor (b.1989, IS/US), Clare Aimée (b.1992, IS/CA), og Vikram Pradhan (b.1997, IS/IN). Saman, skoða þau sína eigin vegferð og sameiginlega lífsreynslu sem innflytjendur.
Uppsetning
/ Installation
Listamenn
Adam Flint Taylor (f. 1989, IS/US)
Adam Flint Taylor er sjálfstætt starfandi hönnuður og kennari sem starfar milli Bandaríkjanna og Íslands. Hann lauk MFA-gráðu í hönnun frá Háskólanum í Kaliforníu, Davis, og er nú deildarstjóri Grafískrar hönnunar við Listaháskóla Íslands. Hann hefur yfir 15 ára reynslu af samstarfi við listamenn, arkitekta, söfn, leikhús og aðrar menningarstofnanir við sýningargerð, tilraunaverkefni, stefnumótun, prent miðlun o.fl. Núverandi rannsóknaráhugamál: tengsl grafískrar hönnunar við frjáls ríki, kapítalisma/andkapítalisma og útópíur.
Clare Aimée (f. 1992, IS/CA)
Clare Aimée er Métis-kanadísk listakona sem hefur starfað á Íslandi undanfarin 10 ár. Hún lauk BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2020 og árið 2019 fór hún í skiptinám í Listaháskólanum í Prag í Tékklandi. Í verkum sínum vinnur hún gjarnan með gjörningakenndar aðferðir og þátttökumiðaða upplifun, þar sem markmiðið er að bjóða fólki inn í kunnuglegan heim en bjóða uppá ljóðrænt samneyti um leið. Verk hennar hafa verið sýnd í Sviss, Chile, Tékklandi, Portúgal, Íslandi, Danmörku, Grikklandi og Kanada.
Julie Sjöfn Gasiglia (f. 1990, IS/FR)
Julie Sjöfn Gasiglia er listamaður sem vinnur þvert á miðla og hefur hún verið búsett á Íslandi frá árinu 2013. Verk hennar sprettu uppúr rannsóknum hennar á tengslum þess mannlega og þess sem er meira-en-mannlegt; unnið í skúlptúr, innsetningar og hljóð. Hún skoðar leiðir til samskipta og tengslamyndunar við aðrar lífverur, gegnum hið manngerða og handan þess, og ögrar mörkum milli manns og náttúru. Hún lauk MA í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2024 og var tilnefnd til hvatningarverðlauna Myndlistarmiðstöðvar Íslands á þessu ári.
Natka Klimowicz (f. 1992, IS/PL)
Natka Klimowicz er myndlistarkona sem sérhæfir sig í plakata hönnun og teikningu, en hefur á undanförnum árum einnig unnið með skúlptúr, málverk og innsetningar. Hún hefur verið búsett á Íslandi frá árinu 2017. Verk hennar fjalla um tilfinningaskala mannsins, eins fáránlegur og alvarlegur hann getur verið í senn; hinar absúrd andstæður síbreytilegra geðhrifa; augnablikið, hálfbrosið, neistann. Hún er útskrifuð í grafískri hönnun og prentlist frá Listaháskólanum í Poznań og verk hennar hafa verið sýnd og hlotið viðurkenningar bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.
Patty Spyrakos (f. 1974, IS/US)
Patty Spyrakos er listamaður sem vinnur með skúlptúr og hefur verið búsett á Íslandi frá árinu 2020. Hún lauk BS-gráðu í sálfræði og mannfræði frá Loyola Háskólanum í Chicago, þar sem hún lagði áherslu á skynfæri/skynjun og þróunarsálfræði; jafnframt stundaði hún keramiknám við Lincoln Square Pottery Studio í Chicago. Vinna hennar er að stórum hluta miðuð að efnistilraunum með áherslu á rannsóknarferlið sjálft, á meðan sögnin mótast í tengslum við umhverfi og stað. Í verkum hennar má greina undirliggjandi þemu sem tengjast sálarlífi, dáleiðslu, og tengsl sjálfs og samfélags. Verk hennar hafa verið sýnd í Chicago, Los Angeles, Hong Kong, Reykjavík og New York.
Pola Sutryk (f. 1994, IS/PL)
Pola Sutryk er listamaður og kokkur sem starfar á mörkum myndlistar, matargerðar og venslalistar, búsett á Íslandi frá árinu 2019. Verk hennar snúast um matreiðslu, séð sem ferli orkuskipta, unnin af virðingu fyrir öllum þátttakendum: þeim sem elda, þeim sem borða og þeim sem eru borðaðir. Hún nálgast mat sem miðil til tengsla og skoðar félagslega gagnvirkni, hinsegin vistfræði, helgisiði og pólitík matarmenningar, þar sem áhorfendum er boðið að endurhugsa félagsleg tengsl sín í gegnum skynræna upplifun. Verk hennar, sem oft sameina innsetningar og þátttökugjörninga, hafa verið sýnd m.a. á Sequences í Reykjavík, Gwangju-tvíæringnum í Suður-Kóreu og á hátíðum á borð við Unsound, Ephemera og Konteksty í Póllandi.
Vikram Pradhan (f. 1994, IS/PL)
Vikram er listamaður frá Indlandi sem býr og starfar á Íslandi. Hann lauk MA-gráðu í hönnun, frá Listaháskóla Íslands árið 2021. Hann vinnur með ólíka miðla hönnunar og skapar patafýsísk verk sem eru í grunninn sálfræðileg og tengjast absúrdisma. Hann er myndlistarmaður og kvikmyndagerðarmaður sem hefur sýnt verk sín á söfnum og hátíðum á Íslandi, í V&A safninu í London og á Indlandi. Verk hans byggja á rannsóknum á spekulatívri hönnun og patafýsík, ásamt því að sækja efnivið í tilraunkennda kvikmyndagerð og ljósmyndun, tilfinningar og hegðun.
Opnun
/ Opening
[ENGLISH]
Sambland (e. Combi-Nation) is about navigating through life—from one end of existence to the other. It reflects on mundane moments that combine to bend the arc of one’s life in a direction fundamentally different from where it began. The exhibition centers on artists from different backgrounds and countries whose paths, by choice or circumstance, have led them to making Iceland their home. Each has experienced, in different ways, the act of uprooting themselves from the ground they grew from and planting themselves in entirely different soil. Like a transplanted plant recognizing the nutrients of new land, there is a desire to take root—but sometimes rooting into unfamiliar terrain can also mean encountering its roughness and coldness.
Through their work, the artists reflect on how much of “there” remains and how much of “here” they have absorbed. They are like travelling weeds - they add richness and variety to the ecosystem. Together, they resist being defined as belonging or not belonging, instead expanding what the garden itself can be.
The artists in the exhibition include Julie Sjöfn Gasiglia (b.1990, IS/FR), Natka Klimowicz (b.1992, IS/PL), Pola Sutryk (b.1994, IS/PL), Patty Spyrakos (b.1974, IS/US), Adam Flint Taylor (b.1989, IS/US), Clare Aimée (b.1992, IS/CA), and Vikram Pradhan (b.1997, IS/IN). Together, the artists reflect on their personal journeys and immigrant experiences.
The project also aims to foster a broader discussion around immigration by organizing open forums and “safe zone” conversations throughout the duration of the exhibition. These gatherings will provide a platform where both immigrants and locals can actively listen, share, and engage in meaningful dialogue about belonging, movement, and identity.
ARTISTS
ADAM FLINT TAYLOR (b.1989, IS/US)
Adam Flint Taylor is an independent designer and educator working between the United States and Iceland. He graduated with an MFA in Design from the University of California, Davis, and is currently the Program Director of Visual Communication at Listaháskóli Íslands. He has over 15 years of experience in collaborating with artists, architects, museums, theaters and other civic organizations on exhibitions, experiments, identities, printed materials, etc. Current research interests: connections between graphic design and free states, capitalism/anti-capital ism and utopia(s).
CLARA AIMÉE (b.1992, IS/CA)
Clare Aimée is a Métis Canadian artist that has been working in Iceland for the last 10 years. She graduated with a BA in Fine Arts from the Icelandic University of the Arts in 2020 and in 2019 went on academic exchange at The Academy of Fine Arts in Prague, Czech Republic. In her practice she often works with performative gestures and interactive experience – inviting people into familiar frameworks with poetic fellowship as a goal. Her work has been shown in Switzerland, Chile, Czech Republic, Portugal, Iceland, Denmark, Greece and Canada.
JULIE SJÖFN GASIGLIA (b.1990, IS/FR)
Julie Sjöfn Gasiglia is a multi-disciplinary artist, based in Iceland since 2013. At the core of her practice, she explores narratives around the connection between humans and more-than-humans; through sculptures, installations or sound. Experimenting with ways to relate and communicate with different living beings, within the human species and beyond. Challenging the boundaries between Human and Nature. She graduated with a Master's in Fine Art from the Icelandic University of the Arts in 2024. She was nominated for the motivational Art Prize of the Icelandic Art Centre this year.
NATKA KLIMOWICZ (b.1992, IS/PL)
Natka Klimowicz is a visual artist specialised in poster design and illustration, recently exploring sculpture, painting and art installation, and based in Iceland since 2017. Her work explores the emotional landscape of humans, at times equally silly as serious; trying to catch the absurd contrast of our ever changing moods, the blink, the smirk, the spark. She is a graphic design and printmaking graduate from University of Arts in Poznan, her work has been exhibited and awarded within the country and internationally.
PATTY SPYRAKOS (b.1974, IS/US)
Patty Spyrakos is a mixed media sculptor based in Iceland since 2020. She graduated with a BS in Psychology/ Anthropology from Loyola University Chicago where she focused on Sensory Systems/Perception, and Evolutionary Psychology; she studied ceramics at the Lincoln Square Pottery Studio in Chicago. Her work is driven largely by process in relation to experimentation with material, while content is often informed by environmental influences based on residency or show location. Her body of work carries underlying themes tied to an evolution of psyche, transitory states, and the formation of bonds between self and society. She has exhibited in Chicago, L.A, Hong Kong, Reykjavík, and New York.
POLA SUTRYK (b.1994, IS/PL)
Pola Sutryk is an artist and cook working between art, food, and social practice, based in Iceland since 2019. Her practice revolves around cooking, understood as processes of energy exchange, carried out with respect for all participants: those who cook, those who eat, and those who are eaten. Treating food as a relational medium, she explores interdependence, queer ecologies, ritual, and the politics of eating, inviting audiences to renegotiate their relations with human and more-than-human world through sensory engagement. Her works, usually combining elements of installation and participatory performance, have been shown e.g. at Sequences in Reykjavik, the Gwangju Biennale in South Korea, and festivals such as Unsound, Ephemera, and Konteksty in Poland.
VIKRAM PRADHAN (b.1994, IS/PL)
Vikram is an artist from India who lives and works in Iceland. He graduated with an MA in Design, Speculative Design and Applied Arts, from Listaháskóli Íslands (2021). He works across design media to create pataphysical artworks that are fundamentally psychological and relate to absurdism. He is a visual artist and filmmaker who has exhibited in museums and festivals in Iceland, the V&A Museum, London and India. His work is centered around research into speculative design and pataphysics, and draws heavily on experiments in filmmaking and photography, emotion and behavior.