VINNUSTOFA
/ Open Studio
21.09 – 11.10.26
REYKJAVIK TOOL ORCHESTRA
KRASSASIG
Reykjavík Tool Orchestra er nýstofnuð sveit undir stjórn krassasig og kemur hún fram á State of the Art hátíðinni 11. október. Í aðdraganda hátíðarinnar verður Gryfjan í Ásmundarsal að opinni vinnustofu þar sem framdar verða tilraunir með borvélar, sagir, steypuhrærivélar og önnur iðnaðarverkfæri, í leit að duldum músíkölskum eiginleikum.
Kristinn Arnar Sigurðsson, krassasig (f. 1995) útskrifaðist af sjónlistadeild Myndlistarskólans í Reykjavík árið 2018 og lauk síðar MA gráðu í sviðsetningu frá HKU í Hollandi árið 2025. Í verkum sínum leitast Kristinn við að tengja saman ólíka miðla á borð við skúlptúr, teikningu, tónlist og gjörning. Verk Kristins eru drifin áfram af forvitni, leikgleði og tilraunamennsku. Algeng þemu í verkum Kristins eru samspil strúktúrs og flæðis, karakter í efni og samruni leikhúss og hversdagsleika.