image_6483441 (5).JPG

Reykjavík Art Book Fair

12. NÓV 2021 - 14. NÓV 2021

HELGA DÖGG ÓLAFSDÓTTIR, ÓLÖF RUT STEFÁNSDÓTTIR & SIGURÐUR ATLI SIGURÐSSON

Reykjavík Art Book Fair byggir á vinsælu alþjóðlegu sýningarsniði listbókamessunnar. Messurnar sem haldnar eru víðsvegar um heim sameina listamenn og hönnuði sem nota bókverkamiðilinn sem listform, lítil listbókaforlög, gallerí og söfn sem stunda útgáfu á prentuðu efni. Útgangspunktur messunnar er að líta á bókahönnun, útgáfu og prent sem listform í stöðugri þróun. Prentið hefur oft verið nefnt lýðræðislegasti listmiðillinn þar sem hann er aðgengilegur öllum, hver sem er getur stundað sjálfsútgáfu og stjórnað dreifingu efnisins. 

Listbókamessur ýta undir þá hugmynd þar sem þær eru einn af fáum viðburðum í listheiminum þar sem óþekktir listamenn, aktívistar, grasrót og gagnmenning sýna samhliða þekktum listamönnum, stofnunum og sölugalleríum.

Stjórn Reykjavík Art Book Fair skipa Helga Dögg Ólafsdóttir grafískur hönnuður, Ólöf Rut Stefánsdóttir vöruhönnuður og Sigurður Atli Sigurðsson myndlistarmaður.

Reykjavík Art Book Fair hlaut styrki frá Reykjavíkurborg, Gunnari Eggertssyni og Litrófi. 

Þátttakendur sáu um sölu á eigin efni og rann allur ágóðinn óskiptur til þátttakenda.
Meðal þátttakenda voru Listasafn Íslands, Nýlistasafnið, Kling & Bang, Prent & vinir
Lóa Hjálmtýsdóttir, Nóvember myndasöguútgáfa, Reykjavík Dance Festival, Bókverkafélagið ARKIR, Grazie Press, Listaháskóli Íslands, I8, Guðrún Benónýsdóttir, Þrjár hendur, Listasafn ASÍ, Angustúra, LÓFÍ og fleiri. 

Í Ár voru þrjú útgáfu hóf á mismunandi verkum yfir hátíðina, þau voru:

Dunce tímarit útgáfuhóf 12.nóv 18:00 – 21:00

Dunce er árlegt tímarit um kóreógrafíu og gjörningalist gefið út hjá Prenti & vinum í ritstjórn Sóleyjar Frostadóttur, hannað af Helgu Dögg Ólafsdóttur. Tímaritið býður upp á faglega umfjöllun um verk og listrænt ferli danshöfunda og myndlistarmanna sem vinna með gjörningaformið. Dunce veitir viðtöku textum frá listamönnum um eigið skapandi ferli en með því gefst lesandanum tækifæri til að kynnast verki listamannsins af meiri dýpt.

Annað tölublað Dunce inniheldur meðal annars vital Joe Keys við Ilmi Stefánsdóttur um verk hennar á sviði myndlistar og leikhúss, viðtöl við Sigtrygg Berg Sigmarsson, Sigurð Guðmundsson, Natalia Villanueva Linares, Gjörningaklúbbinn, Steinunni Ketilsdóttur og Ingrid Berger Myhre auk skrifa listamanna s.s. Sólbjartar Veru Ómarsdóttur um sýningu Yelena Arakelow og Gígju Jónsdóttur um eigið verk.

Hvít sól útgáfuhóf 13. nóvember 11-17

Bókverkið Hvít sól er myndræn samantekt á samnefndum sýningum hópsins IYFAC. Sýningarnar samanstóðu af innsetningum og gjörningum sem haldnir voru á árunum 2017-2021 í ýmsum útgáfum á fimm mismunandi stöðum. Viðfangsefni þeirra var sólargangurinn og áhrif sólar og birtu á menn og samfélög. Samhliða útgáfunni verður gefin út ljósmyndaserían Veiddar sólir sem er sprottin upp úr hugmyndaheimi Hvítrar sólar, og verður til sýnis á meðan á útgáfuhófinu stendur. Einnig verða sýnd brot úr sýningunum ásamt hljóðmynd verksins eftir Daníel Helgason.

Höfundar verksins eru Halla Birgisdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Ragnheiður Maísól Sturludóttir og Sigrún Hlín Sigurðardóttir. Verkefnið er styrkt af Myndlistarsjóði.

Koma jól? Útgáfuhóf sunnudaginn 14. nóvember kl. 13–17

Koma jól? er jólaljóðabók eftir Hallgrím Helgason og Rán Flygenring sem kveðst á við fræga bók Jóhannesar úr Kötlum, Jólin koma. Hér er að finna nýjustu fréttir af Grýlu og Jólakettinum og þá stíga hinar jökulhressu Grýludætur, systur jólasveinanna, fram úr þúsund ára löngum skugga bræðra sinna og arka til byggða, hver með sínu lagi og hrekkjabrögð í farteskinu.

Í tilefni útgáfunnar mun Hallgrímur lesa upp úr bókinni í tvígang, fyrst klukkan 14 og aftur klukkan 15.

Dúkristur Ránar verða sýndar í Gryfjunni frá 11–17 og tölusett eintök í takmörkuðu upplagi til sölu. 

Öll velkomin nema Grýla – léttar veitingar í boði.