VINNUSTOFA
/ Open Studio
01.07 – 05.08.26

Kristján Thorlacius

Sumarbókaflóð Ferlegs Verlags

 

Ferlegt Verlag er bókaútgáfa sem varð til í Hollandi vorið 2023 þegar mér var boðið að taka þátt á samsýningunni „Boekie Woekie and Friends“, sem haldin var á vegum myndlistarbókabúðarinnar Boekie Woekie í Amsterdam. Þar var til mín ætlast að halda uppi stemningu fyrir sýningargesti á þeim sex vikum sem á sýningu stóð en ég grínaðist með þá hugmynd að gefa út eina bók á dag við skipuleggjendur sýningarinnar í matarboði hálfu ári fyrir opnun. Þeim leist svo vel á þá hugmynd að það var ekki aftur snúið og á þeim 42 dögum sem sýningin stóð uppi urðu útgefnir titlar alls 44 talsins.

Ferlegt Verlag snýr nú loksins aftur og tekur að þessu sinni yfir Gryfjuna í Ásmundarsal. Þar endurtökum við leikinn með örlítið breyttum áherslum, hærri standördum, stærri verkefnum og vandaðari útgáfu. Ég mun vera við störf í húsinu daglega frá ellefu til fjögur og vinna að þremur stórum bókverkum, Pappamassi, Klósettpappafarsi og Íslensk stafasúpa. Á sama tíma og ég vinn að þessum þremur verkum mun ég bjóða góðum hópi myndlistarmanna og vina að koma í heimsókn á vinnustofuna og vera með margs konar uppákomur hvort sem það verður upplestur, tónlistaratriði, gjörningur eða útgáfa. Sem dæmi um nokkra má nefna; fullkomið afmæli fyrir manneskju sem fékk aldrei að upplifa það, Hreinn Friðfinnsson reyktur, upplestur frá manni með innilokunarkennd, freestyle ljóðaflutningur og mennskur gosbrunnur. Allt sem fram fer á sýningunni verður skrásett, prentað og sett saman í stóran katalóg.

Pappamassi: Verkið sem á að bjarga heimili mínu og lífi. Ég hef alla tíð teiknað og skrifað hraðar en ég hugsa og því aldrei náð að halda utan um það sem ég bý til. Á heimilum og vinnustofum eru allir krókar og kimar stappfullir af pappadrasli sem aldrei verður neitt ú ren ég fæ mig ekki til þess að henda. Lausnin er pappamassi, skanna allt inn, krumpa því svo saman og byggja úr því stóra styttu af sjálfum mér. Stytta sú mun standa sem minnisvarði um þá órækju og aumingja sem ég var og hvetja nýjan Kristján til þess að hafa röð og reglu á hlutunum. Ef þetta virkar ekki og allt fellur í sama farveg þá geri ég nýja styttu eftir tíu ár, nákvæmnlega eins en heldur sköllóttari og feitari.

Klósettpappafarsi: Í skiptinámi á Spáni árið 2019 eignaðist ég mína fyrstu ritvél. Ég man hvað mér fannst hún spennandi en í fyrstu var mjög erfitt að skrifa. Vandamálið var ekki að ég vissi ekki hvað ég ætti að skrifa heldur fannst mér skrifin aldrei passa við fagurfræði ritvélarinnar. Ég ólst upp með heimilistölvu og sá snjallsíma í fyrsta skipti fjórtán ára, ef ég ætlaði mér að fara að skrifa eitthvað af viti á ritvél þá þyrfti ég að byrja að hlusta á jazz og reykja pípu. Svo einn daginn þræddi ég klósettpappír í gegnum hana og þá breyttist allt, það var komið nýtt mótíf. Síðan þá hef ég alltaf gripið í ritvélina hér og þar en aldrei skrifað neitt almennilegt af viti. Nú í sumar mun ég negla niður fyrsta bindi eigin ævisögu. Æviágrip; frá blautu barnsbeini til ímyndunarveiks ungmennis. Inn á milli kafla hendi ég örugglega líka í nokkrar óumbeðnar skoðanayfirlýsingar. Í seinustu vikunni verð ég með upplestur inni á baði.

Íslensk stafasúpa: Ljóðasafn á íslensku fyrir útlendinga sem ekki skilja hana. Öllum er velkomið að taka þátt í þessu verki svo lengi sem þau hafa einhvern skilning á íslenskri tungu og gaman af því að leika sér með hana. Hægt verður að mæta með ljóð, prósa, setningu eða hvers konar texta, raða honum ofan á ljósritunarvélina með stafasúpunúðlum svo að hann skiljist og prenta út. Núðlurnar fara svo allar í einn pott og úr verður ljóðasúpa og gestum sem ekki skilja íslensku verður boðið að smakka á lokadegi sýningar.