AFRAKSTUR VINNUSTOFU
/ LOKAHÓF
28. JÚNÍ 2025
15–17
HVAÐ EIGA KONUR AÐ VERA AÐ GERA!?!
LOKAHÓF
EBBA KATRÍN FINNSDÓTTIR
UNA ÞORLEIFSDÓTTIR
Una Þorleifsdóttir og Ebba Katrín Finnsdóttir sem hafa undan farnar vikur tekið yfir Gryfjuna í Ásmundarsal bjóða gestum og gangandi á afrakstur vinnustofu sinnar laugardaginn 28. júní milli klukkan 15 og 17.
Í vinnustofunni hafa Ebba og Una rannsakað í gegnum skrif og verkefni hlutverk, aðstæður og stöðu kvenna og kyngervisins. Innblástur verkefnisins er bókin Konur sem kjósa – aldarsaga eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur, Kristínu Svövu Tómasdóttur, Ragnheiði Kristjánsdóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttir.
Efnið sem varð til í vinnustofunni verður sýnilegt í rýminu sjálfu – fest á veggi, flutt sem textabrot eða framkallað í efnislegum gjörningum og afrakstur vinnustofunnar þannig safn ólíkra verka; texta, frásagna, vídjó og gjörninga sem saman munu mynda grunn að stærra sviðsverki.
Á lokahófi vinnustofunnar, þann 28. júní mun afraksturinn vera sýndur, þar sem fram koma Una og Ebba, ásamt gestum og fjallkonunni.
Ebba Katrín Finnsdóttir er leikkona sem hefur vakið athygli fyrir frumlega nálgun og sterka nærveru á sviði. Hún hefur unnið bæði sjálfstætt og með helstu leikhúsum landsins, auk þess sem hún hefur skapað eigið efni þar sem hún leikur sér með mörk leiklistar, gjörninga og tónlistar. Verk hennar einkennast af persónulegri og pólitískri sýn þar sem hún rannsakar tengsl líkama, raddar og samfélagslegra valda. Ebba Katrín útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2018 og hefur síðan starfað víða á sviði listanna – jafnt innan stofnana sem á jaðrinum. Meðal eftirminnilegra hlutverka eru Ugla í Atómstöðinni, Tessa í Orð gegn orði, Júlía í Rómeó og Júlíu og hlutverk í Meistaranum og Margarítu, Ást og upplýsingar og Temple of Alternative Histories í Þýskalandi.
Ebba hefur einnig komið fram í fjölda kvikmynda og sjónvarpsverka, þar á meðal Agnes Joy, Húsó, Vigdís og Venjulegt fólk, og hefur verið fastagestur í Áramótaskaupinu síðustu ár. Hún hlaut Grímuverðlaunin 2020 fyrir túlkun sína á Uglu og hefur hlotið margar tilnefningar bæði í aðal- og aukahlutverkum. Árið 2024 var hún útnefnd bæjarlistamaður Hafnarfjarðar.
Una Þorleifsdóttir er sjálfstætt starfandi leikstjóri. Hún útskrifaðist með MA í leikstjórn frá Royal Holloway, University of London, árið 2004 og með BA frá Goldsmiths College. Una hefur leikstýrt fjölda sýninga innanlands og erlendis, meðal annars í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu og Teatr Stefana Zeromskiego í Póllandi. Meðal eftirtektarverðra uppsetninga eru Atómstöðin – endurlit, Gott fólk, Tímaþjófurinn, Ást og upplýsingar og Óvinur fólksins. Hún hefur fimm sinnum verið tilnefnd til Grímunnar sem leikstjóri ársins og hlotið verðlaunin tvisvar – fyrir Atómstöðina – endurlit 2020 og Gott fólk 2017. Leikgerð hennar af Konunni við 1000° var valin leikrit ársins 2015. Una hefur jafnframt starfað sem kennari og stjórnandi sviðslistanáms við Listaháskóla Íslands frá 2004–2022 og gegnir nú stöðu deildarforseta sviðslistadeildar LHÍ. Hún hefur birt greinar og stundað rannsóknir um sviðslistir bæði á Íslandi og erlendis, með áherslu á listræna þróun, feminíska sýn og samtímanálgun í klassískum verkum.
[ENGLISH]
Ebba Katrín Finnsdóttir is an Icelandic actress known for her original approach and commanding stage presence. She works both independently and within major institutions, and has created original works that blend theatre, performance, and music. Her practice is rooted in a personal and political perspective, exploring the relationship between body, voice, and social power structures. She graduated from the Iceland University of the Arts in 2018 and has since worked across the performing arts – both within established theatres and on the experimental fringe. Notable roles include Ugla in The Atom Station, Tessa in He Said, She Said, Juliet in Romeo and Juliet, and performances in The Master and Margarita, Love and Information, and Temple of Alternative Histories (Germany). Ebba has also appeared in film and television, including Agnes Joy, Húsó, Vigdís, and Ordinary People, and has been a regular in Iceland’s New Year’s comedy revue Áramótaskaupið. In 2020, she won the Icelandic Performing Arts Award (Gríman) for her portrayal of Ugla, and has been nominated several times in both leading and supporting roles. In 2024, she was named Artist of the Year by the Municipality of Hafnarfjörður.
Una Þorleifsdóttir is an independent theatre director working across Iceland and Europe. She holds an MA in Directing from Royal Holloway, University of London (2004), and a BA in Drama and Theatre Arts from Goldsmiths College. Una has directed numerous productions at the National Theatre of Iceland, Reykjavík City Theatre, and Teatr Stefana Żeromskiego in Poland. Her acclaimed productions include The Atom Station – A Revisit, Good People, The Time Thief, Love and Information, and An Enemy of the People. She has been nominated five times for the Icelandic Performing Arts Award (Gríman) as Director of the Year and won the award twice – for The Atom Station – A Revisit (2020) and Good People (2017). Her adaptation of Woman at 1000°, co-written with Hallgrímur Helgason and Símon Birgisson, was awarded Play of the Year in 2015. From 2004 to 2022, Una taught directing and performance theory at the Iceland University of the Arts, where she now serves as Dean of the Department of Performing Arts. Her research and publications focus on contemporary approaches to classical texts, feminist aesthetics, and artistic process, both in Iceland and internationally.