SÝNING
/ EXHIBITION

05.12.–23.12.26

Jólasýningin 2026

Það snjóar bara og snjóar…

OPNUN:
05.12.26
laugardagur
14:00 – 17:00

Það snjóar bara og snjóar á Jólasýningu Ásmundarsalar 2026, sem opnar laugardaginn 5. desember kl. 14-17.

Á árlegri jólasýningu Ásmundarsalar fyllist húsið af myndlist, jólagleði og í ár – snjókornum!

Gagarín tekur yfir Gryfjuna með gagnvirkri innsetningu þar sem gestir fá að skapa sitt eigið snjókorn. Með því að leika sér með hitastig og rakastig verða til ólíkar gerðir snjókorna sem síðan svífa af stað og birtast í snjókomu sem fyllir alla veggi rýmisins. Hvert snjókorn er einstakt og gestir verða sjálfir hluti af verkinu.

Á jólatrénu uppi í sal má einnig finna einstök listaverk. Listamennirnir fengu það verkefni að skapa verk sem eru ekki stærri en 15 cm á kant. Alls prýða 78 verk eftir jafnmarga listamenn tréð og samhliða opnun sýningarinnar kemur út bók með öllum verkunum. En jólasýningin lætur ekki þar við sitja því myndlistin þekur einnig veggi og fyllir öll rými Ásmundarsalar. Þar gefst gestum kostur á að skoða fjölbreytt úrval verka eftir rúmlega 100 listamenn og festa kaup á verkum beint af veggnum – hvort sem leitað er að einstakri jólagjöf, nýrri viðbót í listasafnið eða einfaldlega smá myndlistarlegri gleði í skammdeginu.

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í jólaveislu Ásmundarsalar þar sem myndlistin fær að njóta sín, hægt er að leika sér inni í snjónum og við fögnum aðventunni saman.

SÝNENDUR: Alex Gonclaves, Andri Björgvinsson og Caroline Barreco, Anna Hallin, Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Annahita Asgari, Árni Jónsson, Áslaug Íris Katrín, Áslaug Thorlacius, Ásta Fanney, Björk Viggósdóttir, Boaz Yosef Friedman, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Curver Thoroddsen, Dagur Benedikt Reynisson, Diana Burkot, Dýrfinna Benita Basalan, Elín Hansdóttir, Elo Vazquez, Emilia Telese, Eva Sóldís Bragadóttir, Finnur Arnar Arnarson, G. Erla, Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar, Gjörningaklúbburinn, Guðmundur Thoroddsen, Guðrún Kristjánsdóttir, Gylfi Freeland Sigurðsson, Hákon Bragason, Halldór Ásgeirsson, Halldór Ragnarsson, Halldór Sturluson, Helena Margrét, Helga Sif Guðmundsdóttir, Helgi Már Kristinsson, Hildur Elísa Jónsdóttir, Hjálmar Kakali Baldursson, Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttir, Hrafnkell Tumi, Hrefna Hörn, Hulda Katarína Sveinsdóttir, Indriði Arnar Ingólfsson, Íris Eva Ellenardóttir, Ísar Svan, Jo Pawlowska, Johanna Seeleman, Jón Helgi Hólmgeirsson, Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Júlíana Ósk Hafberg, Kjartan Hreinsson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Kristín Karólína, Kristín Rúnarsdóttir, Kristján Thorlacius, Lára Margrétardóttir, Linus Lohman, Lísandra Týra, Lucrezia Costa, Lukas Bury, Magnús Óli Sigurðsson, Margrét Dúadóttir, Margrét Helga Sesseljudóttir, Nína Óskars, Olga Bergmann, Patricia Carolina, Pétur Geir, Pétur Thomsen, Pola Sutryk, Ra Tack, Ragnheiður Káradóttir, Ragnhildur Ágústsdóttir, Ragnhildur Weisshappel, Rakel Andrésdóttir, Regina Rourke, Sara Björg Björnsdóttir, Sara Björnsdóttir, Sara Riel, Sæmundur Thor, Selma Hreggviðsdóttir, Sigga Björg, Sigrún Gyða, Sigtryggur Bjarni Baldvinsson, Sigurrós Björnsdóttir, Silfrún Guðlaugsdóttir, Soffía Sæmundsdóttir, Sóley Lee Tómasdóttir, Steinn Logi, Studio Flétta, Studio Miklo, Studio Pluto, Sturla Magnússon, Styrmir Örn, Tara Njála, Theodóra Alfreðsdóttir, Thomas Pauzs, Tinna Gunnarsdóttir, Vala Sigþrúðar Jónsdóttir, Valgerður Sigurðar, Veigar Ölnir, Weronika, Þór Vigfússon, Þórður Hans, Þórir Freyr Höskuldsson.

GAGAGRÍN er hönnunarstofa sem sérhæfir sig í upplifunarhönnun, gagnvirkum sýningum og skapandi miðlun. Við sameinum frásagnir, hönnun, tækni og arkitektúr til að skapa einstakar og eftirminnilegar upplifanir. Verkefni okkar spanna allt frá söfnum og gestastofum til sýninga og áfangastaða, þar sem við vekjum sögur og hugmyndir til lífsins og tengjum fólk við staði, menningu og þekkingu á lifandi og skapandi hátt.

Gagarin creates environments where storytelling, visual communication, interactive media and architecture come together. Our work ranges from exhibitions and visitor centres to brand spaces, trade fair installations and destination experiences. We believe strong design connects people with places, knowledge, brands and ideas.

TÆKNIBÚNAÐUR / AV EQUIPMENT 
ORIGO & i8

HLJÓÐVERK / AUDIO WORK
JONATHAN KAWCHUK

SMÍÐI / FABRICATION
DICK ERINKVELD

MÁLMSMÍÐI / METALWORK
JÁRNSMIÐJA ÓÐINS

GÓLFEFNI / CARPET
GÓLFEFNABÚÐIN


[ ENGLISH ]

Christmas exhibition

It’s snowing & snowing…

OPening:
saturday
05.12.26
2PM – 5PM

It’s Snowing and Snowing at Ásmundarsalur’s Christmas Exhibition 2026, opening on Saturday, December 5 at 2-5 pm.

As always, Ásmundarsalur’s annual Christmas exhibition fills the house with art, christmas spirit and this year – snowflakes!

Gagarín takes over the Gryfja gallery with an interactive installation where visitors can create their very own snowflake. By playing with temperature and humidity, visitors can generate different types of snowflakes, which then drift away and appear in a snowfall projected across the walls of the space. Each snowflake is unique, and visitors become part of the artwork themselves.

The Christmas tree in the main gallery is also adorned with unique works of art. Artists were invited to create pieces no larger than 15 cm in any direction. In total, 78 works by 78 artists will decorate the tree, and a book featuring all the works will be published alongside the opening of the exhibition. But the Christmas exhibition doesn’t stop there: artworks also cover the walls and fill every corner of Ásmundarsalur. Visitors can explore a diverse selection of works by over 100 artists and purchase artworks directly from the walls – whether looking for a special Christmas gift, a new addition to their art collection, or simply a little artistic joy in the winter darkness.

We warmly welcome you to Ásmundarsalur’s Christmas celebration, where art takes centre stage, visitors can play in the snow indoors, and we celebrate the festive season together.

See you at It’s Snowing and Snowing, Ásmundarsalur’s Christmas Exhibition, on Saturday, December 5, from 2 pm.