DANSverk
/ PERFORMANCE
SALUR

HEYRÐU MIG

Sveinbjörg Þórhallsdóttir

 

Dansverkið Heyrðu mig er innblásið af lífi dansarans Diljár Sveinsdóttur, sem fæddist heyrnarlaus en hefur á sinn einstaka hátt skapað sér leið sem atvinnudansari og listakona. Verkið segir frá lífi hennar, frá bernsku til dagsins í dag, þar sem baráttan, þrautseigjan, líf og list flæða inn í hreyfingu, rytma og líkama. Í verkinu fléttast dans og táknmál saman við sjónrænar upplifanir og hljóðheim sem endurspeglar líkamlega skynjun. Verkið er flutt í innsetningu eftir Jóní Jónsdóttur en innsetningin mun standa uppi á milli sýninga. Gestir geta því skoðað hana utan sýningartíma auk innsetningar í Gryfjunni í Ásmundarsal sem einnig hluti af verkinu. 

 

Danshöfundur:
Sveinbjörg Þórhallsdóttir

Dansari verksins:
Diljá Sveinsdóttir

Aðrir dansarar:
Bjartey Elín Hauksdóttir
Júlía Kolbrún Sigurðardóttir
Lísbet Sveinsdóttir
Sóley Ólafsdóttir
Sveinbjörg Þórhallsdóttir


Sjónrænt útlit:
Jóní Jónsdóttir


Tónlist:
Urður Hákonardóttir


Lýsing:
Kjartan Darri Kristjánsson


Listræn ráðgjöf:
Margrét Sara Guðjónsdóttir


Myndbandsgerð:
Jan Moczulsk


Ljósmynd á plakati:
Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir

Verkið er styrkt af Sviðslistasjóði
og Borgarsjóði Reykjavíkurborgar

 

▸ Kaupa Miða

Sýningar hefjast
kl. 20:00

Lengd sýningar:
50 mínútur

 
 

Sveinbjörg Þórhallsdóttir er danshöfundur sem í verkum sínum rannsakar tengsl innri skynjunar og líkamlegrar tjáningar. Hún lauk dansnámi í New York og er með meistaragráðu í kóreógrafíu frá Fontys-háskólanum í Hollandi.

Listsköpun hennar byggist á leit að einlægni í hreyfingu, að sannleikanum sem birtist þar sem tími, skynjun og nærvera mætast. Með hugleiðslu og djúpri tengingu við innri skynjun líkamans skapar hún aðstæður þar sem hreyfingar geta sprottið fram á einlægan og lífrænan hátt, mótaðar af reynsluheimi og upplifun dansarans.

Sveinbjörg hefur starfað víða á sviði dans- og sviðslista, bæði í Reykjavík og á alþjóðlegum vettvangi, og hlotið fjölda tilnefninga og viðurkenninga fyrir verk sín. Hún er einn af stofnendum Reykjavík Dance Festival (2002) og Dansverkstæðisins (2010). Á árunum 2011–2021 gegndi hún stöðu prófessors og fagstjóra samtímadans við Listaháskóla Íslands.

Diljá Sveinsdóttir lauk námi sínu í Artez í Hollandi árið 2022 og var í starfsnámi hjá Club Guy and Roni og Conny Janssen Danst. Hún lærði einnig kvikmyndagerð í Escac í Barcelóna 2023-2024.

Hún samdi verkið HEAR_ME ásamt Robin Kroes og THE_AND sem var sýnt í Hollandi. Diljá hefur unnið með Sveinbjörgu Þórhallsdóttur með verkið Rof sem var sýnt á Cannes Dance Festival og Jóní Jónsdóttur og Eirúnu Sigurðardóttur (Gjörningaklúbburinn) með verkin Flökkusinfóníu og Vitni. Hún hefur dansað í söngleikjunum Billy Elliot í Borgarleikhúsinu, Kabarett í Þjóðleikhúsinu og mun dansa í Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu í haust. Hún hefur dansað á Reykjavík Dance Festival, Lunga, Druslugöngunni, Gay Pride og Airwaves. Árið 2024-2025 starfaði Diljá hjá IID Company í Rotterdam. Diljá starfar hjá Íslenska dansflokknum og hefur dansað í verkunum Hringir Orfeusar…og annað slúður eftir Ernu Ómarsdóttur og Garðurinn eftir Antonio de Rosa og Mattia Russo. Í dag starfar Diljá sem dansari að verkinu Heyrðu mig eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur.

Jóní Jónsdóttir útskrifaðist frá Myndlista-og Handíðaskóla Íslands árið 1996 og frá Konunglega Listaháskólanum í Kaupmannahöfn árið 1999. Árið 2011 lauk hún M.Art.Ed námi í listkennslufræðum frá Listaháskóla Íslands. Ásamt því að hafa haldið einkasýningar, tekið þátt í samsýningum og gert viðamikil sviðsverk í samstarfi við danshöfunda og fyrir leikhús, er Jóní ein af stofnendum Gjörningaklúbbsins / The Icelandic Love Corporation sem hefur haldið fjölda einka- og samsýninga og framið umfangsmikla gjörninga, bæði heima og erlendis.

Urður Hákonardóttir á að baki langan og farsælan feril sem tónlistar og sviðslistakona.  Hún var lengi vel meðlimur hljómsveitarinnar GusGus þar sem hún starfaði sem söngkona og lagahöfundur en hefur einnig gefið út tónlist undir eigin nafni og starfað með mörgum virtum tónlistarmönnum víðsvegar um heim. Urður hefur samskapað sviðsverk, samið tónverk fyrir bæði kvikmyndir og dansverk, og starfað við búningagerð og hönnun í leikhúsi, sjónvarpi og kvikmyndum. Hún hefur hlotið tilnefningar til Grímuverðlaunanna fyrir tónlist, hljóðmynd, búningagerð og dansverk ársins.

Kjartan Darri Kristjánsson útskrifaðist með BA frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2015. Eftir útskrift tók hann til starfa hjá Leikfélagi Akureyrar og lék m.a. í verkunum Pílu Pínu og Helga magra. Hann hefur tekið þátt í fjölda sýninga í sjálfstæðu senunni sem leikari, videó, hljóð og ljósahönnuður. En þar ber helst að nefna sýningarnar Endastöð-Upphaf í uppsetningu Lab-Loka, Hún Pabbi í Borgarleikhúsinu, Hans Blær í uppsetningu Óskabarna Ógæfunnar, Svartlyng í uppsetningu GRAL, Sund í uppsetningu Blautra Búka og sýninguna How to Become Icelandic in 60 Minutes sem sýnd hefur verið í Hörpu yfir 700 sinnum. Darri er starfandi leikari við Þjóðleikhúsið og hefur unnið þar frá árinu 2020. Draumaþjófurinn, Edda, Kafbáturinn, Lína Langsokk, Kardemommubærinn og Frost eru meðal sýninga sem hann hefur tekið þátt í. Þá leikstýrði hann sýningunni Eltum Veðrið sem var sýnt fyrir rúmlega 20.000 áhorfendum. Darri hlaut tilnefningu til Grímuverðlauna fyrir ljósahönnun í sýningunni Þórbergur og hefur tvisvar hlotið Grímuna sem leikari ársins.

Ragnheiður Maísól Sturludóttir er með BA gráðu í myndlist og MA gráðu í hagnýtri þjóðfræði. Síðan 2013 hefur hún starfað við menningarframleiðslu og eigin listsköpun en hún er ein af stofnendum MurMur Productions. Ragnheiður Maísól hefur komið að framleiðslu yfir 20 sjálfstæðra leikverka en að auki unnið við listræna stjórnun, framkvæmdastjórn og markaðssetningu fjölbreyttra menningarviðburða síðasta áratug.

 

[ ENGLISH ]

HEYRÐU MIG

Sveinbjörg Þórhallsdóttir

 

The work Heyrðu mig is inspired by the life of dancer Diljá Sveinsdóttir, who was born deaf and has, in her own unique way, forged a path as a professional dancer and artist. The work tells the story of her journey — from childhood to the present day — where struggle, perseverance, life, and art flow together through movement, rhythm, and the body. The work opens a door to a world where dance and sign language intertwine with visual experiences and a soundscape that reflects physical perception. The work is performed in an installation by Jóní Jónsdóttir. Between shows guest can see the installation aswell as an installation in Gryfjan in Ásmundarsalur, which also is a part of the work. 

 

Choreographer:
Sveinbjörg Þórhallsdóttir

Performer:
Diljá Sveinsdóttir

Additional Performers:
Bjartey Elín Hauksdóttir
Júlía Kolbrún Sigurðardóttir
Lísbet Sveinsdóttir
Sóley Ólafsdóttir
Sveinbjörg Þórhallsdóttir

Visual Design:
Jóní Jónsdóttir

Music:
Urður Hákonardóttir

Lighting Design:
Kjartan Darri Kristjánsson

Artistic Advisor:
Margrét Sara Guðjónsdóttir

Video:
Jan Moczulsk

Poster Photography:
Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir

The work is funded by Performing Arts Fund and Reykjavík City Fund.

 

buy ticket

Performance starts
at 8:00 PM

Running time:
50 minutes