VINNUSTOFA
02.03 – 12.04.26
Alda Ægisdóttir
Rammi fyrir ramma
Lokahóf:
Fimmtudaginn, 09.04.26
KL. 17 – 19
Rammi fyrir ramma er opin vinnustofa þar sem Alda Ægisdóttir vinnur að myndlistar-kvikmyndaverki. Verkið fylgir stelpu sem leiðist inn í ævintýra heim þar sem mörk raunveruleika og ímyndunarafls verða óljós og kunnugleg rými taka á sig nýjar og óræðar myndir.
Frá 2. mars til 4. apríl verður Gryfjunni umbreytt í stillumyndastúdíó þar sem brúður og leikmyndir, eða smáheimar verða smíðaðir og settir upp. Með hægfara og nákvæmri aðferð stillumyndagerðar er hreyfing byggð upp ramma fyrir ramma, þar sem handverkið sjálft mótar takt og rými verksins. Verkefnið sækir í hefðir ævintýra og myndrænna frásagna.
Gestum gefst kostur á að fylgjast með þróun verksins á meðan á vinnslu stendur, skoða senur og skúlptúra úr myndinni og fá innsýn í ferli þar sem kvikmynd verður til í samtali við myndlist, efni og tíma.
Vinnustofan
/ Open Studio
Alda Ægisdóttir (f. 1999) er myndlistar- og kvikmyndagerðarkona starfandi í Reykjavík. Í verkum sínum vinnur hún á mörkum skúlptúrs, innsetningar og stillumyndagerðar þar sem handgerð form, efni og hreyfing verða að frásagnarmáta. Í gegnum endurtekin tákn og umbreytingar kannar Alda dulvitaðar tilfinningar, tengsl manns og náttúru og hvernig ímyndunaraflið mótar skilning okkar á veruleikanum
Alda útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2024. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga, meðal annars í Verksmiðjunni á Hjalteyri og Djúpavík. Verk hennar hafa einnig birst í almannarými, þar á meðal stórskúlptúr í Kringlunni og verk fyrir RIFF (Reykjavík International Film Festival). Hún hefur skapað tvær stillumynda (e. stop-motion) stuttmyndir, Sagan af bláu stúlkunni (2022) og Sálufélagar (2024), sem báðar hlutu verðlaunin Tilraunaverk ársins á Sprettfisknum - Stuttmyndakeppni Stockfish, en Sálufélagar var jafnframt sýnd á Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð í Reykjavík. Alda notar stillumyndarmiðilinn til að kanna hvernig hreyfð mynd getur orðið framlenging skúlptúrs.
Vinnustofan
/ Open Studio
LOKAHÓF
/ FINISSAGE
Rammi fyrir rammi er vinnustofa þar sem Alda hefur unnið að nýju stop-motion verki (stillumynd) í Gryfju síðast liðinn mánuð.
Verkið fjallar um stelpu sem fer óvænt inn í undarlegan ævintýraheim og er innblásið af verkum eins og Lísu í undralandi, Galdrakarlinum í Oz og öðrum ævintýrum úr barnæsku Öldu. Heimur myndarinnar er unnin sem innsetning þar sem verur og umhverfi eru handunnar úr textíl, pappamassa, sílikoni, leir og stáli. Vinnuferlið einkennist af spuna þar sem söguþráðurinn verður til með myndlistinni sjálfri, hann mótast þannig eftir heimi skúlptúranna en ekki fyrirfram gefins handrits.
Á lokahófi stígur Alda fram og spinnur eina senu í lifandi gjörning við tónlist Yuliu og Evu.